Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Töffaraskapurinn kom borgarbúum í gegnum flóðin

Skyndiflóð herjuðu á New York-borg í gær og því var lýst yfir neyðarástandi. Íslendingur í New York segir miður að náttúruvá geri oftar við sig vart í borginni en segir aftur á móti að borgarbúar hafi margir ekki leyft vatnsveðrinu að hrjá sig, vegna ákveðins „töffara-mentality“.

Hin tvítuga Auður Ína Björnsdóttir hefur verið búsett í New York frá því 2018 og býr á austanverðri Manhattan-eyju. Hún leggur nú stund á sálfræðinám við Macaulay Honors College í Hunter-háskóla í New York-borg.

Sjálf hefur hún ekki lent í miklum vandræðum sökum veðurs en varð þó vitni að hellidembunni sem gerði borgarbúum lífið leitt í gær. Loka þurfti nokkrum línum í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar og aflýsa mörgum rútuferðum.

Auður Ída Björnssdóttir hefur búið í New York frá árinu …

Auður Ída Björnssdóttir hefur búið í New York frá árinu 2018. Ljósmynd/Aðsend

Ástandið mjög mismunandi eftir borgarhlutum

„Ég er ekkert búin að lenda í neinu svakalegur, sem betur fer,“ segir Auður Ína, oftast kölluð Ína, í samtali við mbl.is. „Ég er bara heppin að búa á þeim stað sem ég er á. En skólinn minn lendir alltaf illa í þessu þegar svona gerist.“

Þá hafi veðrið einnig haft mun verri áhrif í Brooklyn heldur en á Manhattan, en í Brooklyn náði flóðið mörgum upp að hnjám, eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan sem vinur Ídu tók í gær.

Á sama tíma flæddi ekki eins mikið á norðaustanverðri Manhattan-eyju.

„Þetta er að verða verra og verra með árunum.“

Ína harmar að náttúruvá sé farin að gera æ oftar vart við sig í borginni sökum loftslagsbreytinga – t.d. núna með skyndiflóðunum og í sumar þegar reykmökkur lá yfir borginni í kjölfar gróðurelda í Kanada. Hún minnist einnig fellibylsins Ídu sem herjaði á New York haustið 2021.

„Þetta er að verða verra og verra með árunum,“ segir hún en bætir þó við að skyndiflóðin í gær hafi ekki verið eins slæm og fellibylurinn mikli árið 2021.

„Það kemur eitthvað svona flóðaatvik einu sinni eða tvisvar á ári og þetta er í rauninni bara hræðilegt, því þetta stíflar flestar gönguleiðir sem við þurfum að nota til þess að komast á milli staða,“ segir New York-búinn.

Pirraðir bílstjórar urðu enn pirraðri

Ína segist aftur á móti ekki hafa tekið eftir því að færri hafi verið á götunum, „sem kom mér alveg á óvart þar sem neyðarástandi var lýst yfir,“ segir hún.

„Það var alveg svipað margt fólk en meira af kannski reiðum bílsjórum – þeir eru það reyndar yfir höfuð í New York – en það var bara allt stopp. Maður komst ekkert því það var alltaf einhver staður sem var á floti.“

Mynd tekinn úr skóla Auðar Ídu. Jarðhæðin var þakin vatni.

Mynd tekinn úr skóla Auðar Ídu. Jarðhæðin var þakin vatni. Ljósmynd/Aðsend

Telur Ína þó flesta New York-búa hafa ákveðið „töffara-mentality“, sem hafi komið þeim í gegnum skyndiflóðin. „Ef þeir þurftu að gera eitthvað þá bara syntu þeir í gegnum vatnið til að komast á þá staði sem þeir þurftu að komast á.“

„En það eru margir pirraðir að við fengum ekki að vita af þessu fyrr. Við fengum bara tilkynningu um morguninn í gær, þegar margir voru farnir í vinnuna og í skólann. Það var eiginlega ekki hægt að taka neinar lestar eða rútur sem langflestir New York-búar þurfa til þess að komast á sinn stað,“ segir Ída að lokum.

mbl.is