Eins og fram hefur komið var Kevin McCarthy vikið úr embætti þingforseta í byrjun mánaðarins þegar átta Repúblikanar og allir þingmenn Demókrataflokksins greiddu atkvæði með vantrauststillögu gegn honum. Þingmennirnir átta voru þeir sömu og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins.
Þá upphófst nokkurra vikna þref á milli ólíkra fylkinga innan flokksins um val á nýjum þingforseta. Áður höfðu Repúblikanar tilnefnt Steve Scalise, Jim Jordan og síðast Tim Emmer. Enginn þeirra hlaut hins vegar náð fyrir augum Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og hörðustu stuðningsmanna hans innan flokksins.
Mike Johnson var tilnefndur í gær af þingmönnum flokksins. Hann hlaut á endanum 220 atkvæði en 217 þarf til þess að verða þingforseti. Ólíkt Emmer sem hafnað var í gær studdi Johnson tilraunir Trump til þess að snúa úrslitum forsetakosninga 2020.
<a href="https://www.youtube.com/watch?v=bawsPuu2rb8">watch on YouTube</a>