Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Björg­vin Ingi og Eva selja hönnunar­para­dís í Akra­hverfinu

Um er að ræða 229 fermetra hús á tveimur hæðum byggt árið 2010. Húsið er hið glæsilegasta þar sem engu hefur verið til sparað við hönnun, innréttingar og tæki. Arkitekt hússins er Sigurður Hallgrímsson.

Þá var gatan valin snyrtilegasta gata Garðabæjar árið 2022.

Byggakur var valin snyrtilegasta gata Garðabæjar árið 2022.Fasteignaljósmyndun

Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu og tvö baðherbergi. Útgengt er úr alrýminu í garð til suðurs og vesturs.

Fallegar mublur prýða alrýmið, þá sérstaklega stólar eftir þekkta hönnuði. 

Við borðstofuborðið eru stólarnir, The Wishbone Chair, einnig þekktir sem CH24 eða Y-Chair, hannaðir árið 1949 af danska hönnuðinum Hans Wegner.

Í stofunni má sjá hinn klassíska hönnun Arne Jacobsen, Svaninn, í koníaksbrúnu leðri hannaðan af Arne Jacobsen árið 1950. Þá er hinn tignarlegi The Lounge Chair í  miðri stofunni.  En stóllinn er hannaður af bandarísku hjónin Charles and Ray Eames árið 1956.

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Við borðstofuborðið eru sex Wishbone Chair, eða Y-stóllinn með koníaksbrúnum leðursessum.Fasteignaljósmyndun
Alrýmið er bjart og opið.Fasteignaljósmyndun
Í eldhúsi eru sérsmíðaðar innréttingar með fallegri eyju og kvartssteini á borðum. Fasteignaljósmyndun
Í stofunni er falleg sérsmíðuð bókahilla sem nær yfir vegginn.Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Tvö baðherbergi eru í húsinu með fallegum innréttingum úr eik.Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Rúmgott og stórt herbergi með parketi á gólfi og góðum skápum sem ná upp í loft. Þaðan er innangengt á baðherbergi. Fasteignaljósmyndun