Sameining þessara sveitarfélaga hefur lengi verið til umræðu.

Upphafið má rekja til valkostagreiningar á sameiningarkostum sem varpaði ljósi á að helstu áhersluatriði í sameiningaviðræðum eru þær sömu hjá sveitarfélögunum.

Þar var efst á lista bættar samgöngur á milli þéttbýliskjarna sveitarfélaganna með göngum undir Mikladal og Hálfdán.

Skipuð var verkefnisstjórn um mögulega sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sumarið 2022.

Verkefnisstjórnin lagði til við sveitarstjórnir sveitarfélaganna snemma árs 2023 að farið yrði í formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.

Í febrúar 2023 var samþykkt á fundi sveitarstjórna beggja sveitarfélaga að hefja formlegar sameiningarviðræður sem munu enda á íbúakosningu sem nú stendur yfir og lýkur á laugardag.