Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Stór­meistarar verði ekki lengur opin­berir starfs­menn

Í Samráðsgátt stjórnvalda segir um fyrirhugaða lagabreytingu að í nýjum lagabálki verði fjallað um skák, laun og styrki til afreksfólks í skák og Skákskóla Íslands, en horft verði til þess að reglur verði einfaldaðar frá því sem nú er.

Samhliða sé áformað að fella brott lög um launasjóð stórmeistara í skák og lög um Skákskóla Íslands, sem bæði tóku gildi árið 1991. Íslenskt samfélag hafi breyst mikið frá því að lögin voru sett og það fyrirkomulag sem þau mæla fyrir um samræmist illa nútímastjórnsýsluumhverfi.

Helstu breytingar sem lagðar eru til séu nýtt fyrirkomulag um laun eða styrki til stórmeistara í skák, sem verði þá ekki lengur opinberir starfsmenn, þar sem horft verði í meira mæli til einstakra verkefna og framgangs þeirra. Þá verði horft til þess möguleika að styrkja unga og upprennandi skákmenn, sem stefna að alþjóðlegum árangri, en hingað til hafi eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari fengið greiðslur úr ríkissjóði.

Markmið frumvarpsins sé að taka á álitamálum sem lengi hafi verið til umræðu. Frumvarpið eigi að hvetja afreksfólk í skák enn meira en nú er til að tefla sem mest til þess að ná hámarksárangri. Stefnt sé að því að ný löggjöf gefi aukna möguleika á því að styðja ungt og efnilegt fólk til afreka í skák. Þá sé stefnt að því markmiði að einfalda og nútímavæða lagaumhverfi um skák.

Skáksambandinu líst vel á áformin

„Okkur líst ekkert illa á þetta við fyrstu sýn. Eins og þetta er lagt upp þá á þetta ekki að minnka framlög til skákmanna eða skákhreyfingarinnar. Þetta þýði það að menn fá ekki sjálfkrafa laun fyrir að vera stórmeistarar heldur verði þetta meira matskennt,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands í samtali við Vísi.

Í samráðsgáttinni segir að samráð hafi þegar verið haft við Skáksambandið og óskað hafi verið eftir tillögu að nýju fyrirkomulagi styrkveitinga ríkisins til skákhreyfingarinnar. Gunnar segir að stórmeisturum sé frjálst að gera athugasemdir við frumvarpið og að þeir muni vafalítið gera það.

„Við lítum alls ekki svo á að það sé nein aðför að skákmönnum í þessu, heldur frekar að það eigi að umbuna þeim sem leggja sig fram og skara fram úr.“