Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Vara við mjólk frá Candida Just Milk

Matvælaeftirlitið vill vara neytendur við gallaðri mjólk frá Candida Just Milk , bæði undanrennu og léttmjólk, sem er flutt inn af Costco í Kauptúni.

Costco hefur innkallað vöruna sem rennur út fyrir eftirfarandi söludaga:  Léttmjólk 24/01/2024, 25/01/2024 og 04/02/2024 og undanrenna sem er best fyrir söludaga 05/02/2024 og 21/02/2024. 

Framleiðandi vörunnar í Frakklandi getur ekki ábyrgst gæði mjólkurinnar í þessum lotunúmerum.

Neytendum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta henni ekki, farga henni eða fara með til Costco þar sem þeir geta fengið vöruna endurgreidda. 

mbl.is