Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Spreng­ing og skot­bar­dag­i í Ankara

Sprengingin heyrðist víða en innanríkisráðuneytið er staðsett skammt frá þinghúsi Tyrklands, þar sem Recep Tayyip Erdogan, forseti, á að halda ræðu við þingsetninguna í dag.

Ali Yerlikaya, innanríkisráðherra Tyrklands, sagði á X í morgun að lögregluþjónarnir tveir hefðu særst í skotbardaga við annan árásarmannanna. Annar þeirra mun vera alvarlega særður. Þá sagði Yerlikaya að barátta Tyrkja gegn hryðjverkastarfsemi myndi halda áfram þar til síðasti hryðjuverkamaðurinn hefði verið felldur.

Svæðinu við ráðuneytið hefur verið lokað. Sprengjusveitir hafa í morgun verið að skoða sendiferðabíl sem mennirnir eru sagðir hafa verið á og hefur myndefni sýnt eldflaugavörpu liggja í jörðinni nærri bílnum.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni í Tyrklandi og yfirvöld hafa ekki sakað neinn um hana enn. Vígamenn Íslamska ríkisins og Verkamannaflokkur Kúrda hefur get árásir í Tyrklandi á undanförnum árum.

Um það bil ár er síðan sex féllu og 81 særðist í sprengjuárás kúrdískra hryðjuverkamanna í Istanbúl.