Píeta samtökin opna formlega Píetaskjólið á Ísafirði nk. fimmtudag 26. október í geðræktarmiðstöð Vesturafls á Suðurgötu 9, Ísafirði. 

Móttakan hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 14.00 og þar verða til staðar fulltrúar frá Píeta samtökunum, heilbrigðisþjónustu, sveitarstjórar og ýmsir aðrir fulltrúar úr stjórnsýslu Vestfjarða og félagasamtökum. 

Flutt verður stutt kynning á starfsemi Píeta samtakanna, boðið verður upp á hressingu í tilefni dagsins og þá gefst einnig tækifæri til að kynnast og tala saman. 

Eftir opnun Píeta árið 2018 hefur eftirspurn eftir þjónustu samtakanna aukist gríðarlega. Opnun Píetaskjólsins á Ísafirði er liður í því að breiða út þjónustu Píeta eins og unnt er en er þetta fjórða athvarf sem opnað verður á Íslandi en fyrsta á Vestfjörðum. Píeta samtökin veitir hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra. Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur til boða öllum þeim sem hafa náð átján ára aldri og viðtölin eru fyrir einstaklinga með sjálfsvígshugsanir eða eru í sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. 

Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og hægt er að bóka viðtöl í síma 552-2218 alla virka daga milli 09:00 – 16:00.