Iceland
This article was added by the user . TheWorldNews is not responsible for the content of the platform.

Minnst sex látnir eftir eldsvoða á skemmtistað

Að minnsta kosti sex létust er eldur kom upp inn á skemmtistaðnum Teatre í borginni Murcia í suðausturhluta Spánar rétt fyrir klukkan sex í morgun að staðartíma. Fjórir hafa verið fluttir á sjúkrahús á svæðinu vegna reykeitrunar.

Að sögn viðbragðsaðila á svæðinu barst þeim tilkynning klukkan sex um að eldur væri kominn upp á skemmtistaðnum. Viðbragðsaðilar komust ekki inn í húsnæðið fyrr en tveimur klukkustundum síðar en þá höfðu sex manns látist í eldsvoðanum.

Ljósmyndir frá vettvangi sýna þykkan reyk standa úr þaki skemmtistaðarins. Slökkviliðsmenn berjast enn við að vinna bug á eldsvoðanum og hafa yfirvöld varað við því að tala látinna geti hækkað. Enn er óvíst hvað olli eldsvoðanum.

mbl.is